Viss um að það sé drullu erfitt að búa með sér - steindi opnar sig upp á gátt

Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr., hefur lengi verið í sviðsljósinu hérlendis. Hefur hann meðal annars sést mikið á sjónvarpsskjáum landans í hinum ýmsu þáttum og nú nýlega gaf hann út bíómyndina Þorsti.

Steindór er nýjasti gesturinn í þáttunum Einkalífið sem sýndir eru á Vísi. Í þættinum deilir hann meðal annars hversu erfitt hann telji að það sé að vera makinn hans, hversi miklum breytingum lífið tók eftir að dóttir hans Ronja Steinþórsdóttir kom í heiminn árið 2014 ásamt fleiru.

„Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá held ég að það sé drullu erfitt. Ég er mjög gleyminn og  utan við mig en ég er líka bara skemmtilegur og hress. Það er gaman heima hjá okkur, alltaf stemning og lítið þrasað,“ segir Steindi aðspurður um það hvernig það sé að búa með honum.

Viðurkennir hann að það að hafa eignast Ronju hafi breytt honum mikið.

„Þetta er bara geggjað og í rauninni besta tilfinning í heimi. Það sem ég tek mest eftir að ég er orðinn svo lífhræddur. Ég er mikið að veislustýra og skemmta út um allt land og er farinn að vilja fara á bíl í staðinn fyrir að ferðast í flugvél.“

Í þættinum sem má horfa á hér fyrir neðan má heyra Steinda segja frá því þegar hann hitti David Beckham, Russel Brand og fleira.