Morgunkorn Íslandsbanka í dag fjallar um verðbólgu.
Styrking krónu á fyrri hluta ársins og vaxandi samkeppni hefur leitt til þess að verðbólga hjaðnaði nokkuð síðustu mánuði.
Þetta gerist þrátt fyrir hækkun húsnæðisverðs. Og vaxandi launakostnað hér á landi.
Morgunkorn segir útlit fyrir að þessir kraftar takist áfram á í verðbólguþróuninni. En á heildina litið muni verðbólga áfram verða hófleg á Íslandi.
Verðbólga mælist vera 1,5% en var 1,7% í fyrri mánuði.
rtá
Nánar www.islandsbanki.is/morgunkorn www.hagstofa.is