Vísitala félagslegra framfara

Í dag er skrifað um rússneska ástarsögu og landsframleiðslu og félagslegar framfarir í Markaðspunktum Arion banka.

Allt frá því á fjóðra áratugnum hafa þjóðhagsreikingar á borð við VLF verið að ryðja sér til rúms sem mælikvarðar á þróun og framfarir.

Það var þó aldrei ætlun þeirra sem þróuðu hugtökin að þau yrðu mælikvarðar á vellíðan íbúanna.

Nýir mælikvarðar hafa rutt sér til rúms til hliðar við VLF sem mæla lífsgæði með öðrum hætti - dýpka samanburð milli landa og styðja við ákvarðanatöku.

Einna áhugaverðastur þessara mælikvarða er vísitala félagslegra framfara (VFF). Vísitalan fyrir árið 2017 var nýverið birt.

Það er því áhugavert að sjá hversu góð samsvörun er milli þessara tveggja mælikvarða en fylgni mælist ein áttatíu prósent.

Af þessu má draga tvær ályktanir.

Annars vegar að VLF er þrátt fyrir allt þokkalegur mælikvarði á vellíðan íbúa og fjárhagsleg afkoma er samofin vellíðan þeirra.

Hins vegar að vístitala á borð við VFF sé nánast betrumbætt útgágáfa af landsfamleiðslu  -  uppfærð 21. aldar útgáfa  -  og gæti komið í stað hennar.

Skynsamleg niðurstaða er samt sú að ástæðulaust sé að tefla ólíkum mæælikvörðum upp á móti hver öðrum.

Þeir einfaldlega styðja hver við annan.

rtá

Nánar  www.arionbanki.is