Vísindamenn funda vegna bárðarbungu

Vísindaráð Almannavarna fundar í dag vegna aukinnar skjálftavirkni í Bárðarbungu á síðustu dögum, en þar munu fræðimenn bera saman bækur sínar um hugsanlegur ástæður þessa óróa undir jökulhettunni.

Mælar Veðurstofunnar hafa numið fjölmarga smáskjálfta á svæðinu að undanförnu, en sem kunnugt er var mikill hristingur í jörðu á þessum slóðum þegar eldgosinu í Holuhrauni lauk fyrr á þessu ári, en það gos stóð yfir frá 31. ágúst 2014 til 28. febrúar í ár.

Tveir skjálftar yfir þremur á Richter hafa mælst í Bárðarbungu síðustu daga, 3,1 í síðustu viku og 3,2 á mánudag.