\"Við erum að vinna í innleiðingu á þesari vél, það hefur verið meira um bilanir en við gerðum ráð fyrir, smávægileg atvik sem við teljum að ekki þýði annað en óþægindi fyrir farþega, farþegum stafar ekki ógn af öryggisleysi, þetta eru ekki atvik sem hafa skapað hættu heldur snýst þetta um öryggisatriði sem við erum að sjá koma upp. Við verðum að vinna úr þessu og höfum fulla trú á að við munum leysa það verkefni. Allar flugvélar bila einhvern tíma en þetta hafa verið mörg atvik á stuttum tíma hvað þessa vél varðar,\" segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands í samtali við Hringbraut.
Síðast í gær bilaði nýkeypt Bombardier 400 vél og kostaði röskun, seinkanir og óþægindi fyrir farþega. Vitað er um a.m.k. tvær aðrar bilanir. Vélinni var lent nokkuð harklega í Keflavík á dögunum þegar til stóð að fljúga annað. Þingkonan Bjarkey Gunnarsdóttir hefur brýnt FÍ til að bregðast við, enda sé tilfinning notenda í innanlandsflugi sú að öryggi sá niðurleið. Því hafnar Árni Gunnarsson. Hann bendir á að 450 eins vélar séu í notkun víða um heim hjá viðurkenndum félögum. Von sé á tveimur til viðbótar, einni í apríl og annarri í maí.
En kann að vera að bilanir nú tengist því að innlendir flugvirkjar séu óvanir að fást við þessar vélar?
\"Ja, þetta hefur verið ákveðið lærdómsferli,\" svarar Árni Gunnarsson. \"Menn eru að venjast þessum nýju vélum, auðvitað er þetta allt samspil en samt er það þannig að við teljum okur vel undirbúin, höfum notið þjálfunar hjá erlendum séfæðingum, en vitaskuld er þetta lærdómsferli að fara í gegnum innleiðingu á nýrri vél,\" segir Árni en vísar á bug að öryggi landmanna í innanlandsfluginu sé á niðurleið þrátt fyrir hrinu bilana í Bombardier vélinni sem ekki var keypt ný til landsins.