Vís dregur til baka hækkun launa

Stjórnarmenn Vátryggingafélags Íslands, VÍS, hafa ákveðið að afsala sér umdeildri hækkun á stjórnarlaunum sem samþykkt var samhljóða af hluthöfum félagsins á aðalfundi félagsins fyrir hálfum öðrum mánuði. Tillagan gerði ráð fyrir hækkun stjórnarlauna um 75 % og þóknun stjórnarformanns um 50% milli ára. Ákvörðunin vakti á sínum tíma hörð viðbrögð.


Með tillögunni áttu laun almennra stjórnarmanna að hækka  í 350 þúsund krónur á mánuði og laun stjórnarformanns í 600 þúsund krónur.


Í tilkynningu á vef VÍS segir að þar sem stjórnarmenn hafi ákveðið að afþakka hækkunina verði laun stjórnarmanna 200 þúsund krónur á mánuði en stjórnarformanns 400 þúsund krónur. 


Laun stjórnarmanna í helstu fyrirtækjum landsins hafa verið í hámæli síðustu daga, en af fyrirtækjum innan Kauphallar Íslands eru þau mjög misjöfn; hæst hjá Marel þar sem stjórnarformaður fær 1200 þúsund krónur á mánuði en lægst hjá Nýherja þar sem stjórnarformaður hreppir tæp 400 þúsund krónur á mánuði fyrir störf sín.