\"þið eruð að nauðga dætrum ykkar\"

\"Ljótustu hótanirnar hafa líklega verið frá virðulegum verkfræðingum hér á landi sem hafa hótað mér og mínum því að brenna moskur og alla þá sem klæðast kuflum - og mig alveg sérstaklega.\"

Þetta segir Sverrir Ibrahim Agnarsson, fyrsti mísliminn á Íslandi, en hann var gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli í nýliðinni viku og fór þar yfir ævintýralega ævi sína frá því hann ólst upp í miðborginni, á Akureyri og í Dölum og snerist svo frá kristni sinni og áhuga á ismum taó og búdda og fann teppi íslams til að fljúga á þegar hann kynntist alþýðufólki á leið á uxakerru frá Norður-Pakistan í upphafi sjöunda áratugarins sem opnaði fyrir honum heim nýrrar trúar; hann hafi aldrei skilið endurholdgun og þaðan af síður stéttaskiptingu búddismans, en íslam hafi verið honum sem nýr heimur, fulllnægjandi friður og vissa um hið góða. Þáttinn má sjá hér í heild sinni eða í klippum hér á vef Hringbrautar.

En fordómarnir hafa ekki látið á sér standa þau rösku 40 ár sem liðin eru. Þegar Sverrir varð formaður Félags múslima á Íslandi byrjaði óþverrinn að streyma inn á síður fésbókarinnar sem aldrei fyrr: \"Þetta voru alls konar hótanir um barsmíðar og ég kallaður hin mikla skömm þjóðarinnar, það væri setið um mig og ég ætti að fara varlega á kvöldin, þessi bansettans kuflskiptingur sem ég væri.\"

\"Menn halda að það sé skylda okkar misþyrma konum,“ segir hann einnig um fordómana í garð íslam og bætir við að sleggjudómarnir hafi verið gegndarlausnir í gegnum tíðina. Hann hafi tekið upp á því að svara hinu versta og sérstaklega hafi honum blöskrað þegar gömul frænka hans sagði við hann: \"Þú ert múslimi, þið eruð að nauðga dætrum ykkar.“ Hann segir marga segjast hafa lesið Kóraninn en þeir hafi bara lesið haturssíðurnar sem séu búnar að rangtúlka hann og svívirða.

Hann man eftir tveimur eða þremur alvarlegum tilvikum um virkilega útpældar fyrirætlanir um að ganga í skrokk á sér, en hann hafi aldrei orðið óttanum að bráð, enda vel á sig kominn og geti tekið á móti mönnum þótt kominn sé vel á sjötugsaldurinn.

Um trúna efist hann þó aldrei eftir öll þessi ár.

Mannamál eru frumsýnd öll miðvikudagskvöld klukkan 21:00.