Sú mikla jarðskjálftavirkni sem hófst á Reykjanesi á þriðjudagskvöld hefur heldur dregist saman en jarðeðlisfræðingar fylgjast þó vel með framvindunni og útloka ekkert. Öflugasta hrinan náði allt að fimm á Richter og fannst í 100 kílómetra fjarlægð frá upptökunum.
Af þessum sökum hafa Almannavarnir afráðið í samráði við Veðurstofuna og Ríkislögreglustjóra að færa viðvörunarlit fyrir eldstöðina Eldey upp í gulan flokk sem merkir að virkni hennar er yfir eðlilegum mörkum. Vísindamenn Veðurstofunnar segjast á þessari stundu ekki getað útilokað eldgos á þessum slóðum, enda hafi virknin verið stöðug framan af, en nú sé þó heldur farið að draga úr henni.
Engin ummerki eru um eldvirkni á staðnum, hvorki í sjó né á landi.
Eldeyjarsvæðið er eldvirkt og segja vísindamenn Veðurstofunnar að algengt sé að svona hrinur vekji menn til umhugsunar um hættuna sem stafar af rekbeltinu á þessum slóðum en fram að þessu hafi þær gengið yfir - og svo virðist ætla að vera með þessa virkni sem hófst seint á þriðjudag.
Eldey er 15 kílómetra suðvestur af Reykjanestá, ein tignarlegasta eyja við strendur landsins, vel kunn fyrir súlnabyggð sína sem er sú þéttasta í heimi.