Þeistareykjavirkjun kostar 6,6 milljarða

Þeistareykja­virkj­un er kom­in á fram­kvæmda­stig en und­ir­rit­un samn­inga um bygg­ingu stöðvar­húss og veitna fór fram í dag. Þar með fer af stað stærsta framkvæmd Landsvirkjunar frá því Búðar­háls­stöð var vígð í fyrra­vor. 


Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar sagði á blaðamannafundi í dag að undirritunin markaði ánægjulegan áfanga: "Við höf­um lagt mikla vinnu í und­ir­bún­ing Þeistareykja­virkj­un­ar í mörg ár og all­an þann tíma lagt áherslu á góða um­gengni við um­hverfið og sátt við sam­fé­lagið," sagði Hörður í dag.


Það er verktakafyrirtækið LNS Saga sem annast byggingu stöðvarhússins og gufuveitna og munu framkvæmdir við hvorutveggja byrja í sumar, en heildarkostnaður verksins sem tekur 2 ár er um 6,6 milljarðar króna. Vonor standa til að virkjunin hefi starfsemi haustið 2017. Þegar mest lætur munu um 200 manns vinna við framkvæmdina.


Fyrsti áfangi Þeistareykjavirkjunar samsvarar 45MW framleiðslu.