\"Ákvörðun stjórnvalda var rétt. Þótt þarna fari ákveðinn hluti af hálendi Íslands undir vatn er framkvæmdin umhverfisvæn,“ segir Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra um virkjunarframkvæmdir við Kárahnjúka í viðtalsbókinni Frú ráðherra.
Í bókinni sem var gefin út í tilefni út í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna ræða þæt Edda Jónsdóttir og Sigrún Stefánsdóttir við tuttugu konur sem hafa setið á ráðherrastóli. Sérstaka athygli hefur vakið að framsóknarkonurnar Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðhera og Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra nota tækifærið meðal annars til að réttlæta ákvarðanir sem þær tóku vegna Kárahnjúkavirkjunar, einnar umdeildustu virkjunarframkvæmdar Íslandssögunnar, en þær tóku meðal annars þátt í að fella úr gildi úrskurð Skipulagsstofnunar sem hafði lagst gegn framkvæmdunum vegna umhverfisáhrifa og ófullnægjandi upplýsinga um einstaka þætti aðgerðanna.
Af viðtalinu við Valgerði að ráða virðist hún ekki hafa vitað mikið um málaflokkinn þegar hún tók við lyklavöldum í iðnaðarráðuneytinu: \"Ég sagði líka við sjálfa mig: Guð minn góður, þarf ég þá að fara að tala um gígavattstundir, sem ég vissi ekki einu sinni hvað var.“ Hún segist hafa verið \"fljót að taka ákvarðanir“ og bætir við: \"Stundum ef til vill of fljót og gerði þannig vitleysur. En það var bara minn stíll,\" segir hún í bókinni og kveðst ekki sjá eftir neinu.