Virkjanaáform í ófeigsfirði

Það eru ekki margir sem vita hvað er í húfi hefur RÚV eftir lækninum Tómasi Guðbjartssyni. Þar á Tómas við virkjanaáform í Ófeigsfirði á norðanverðum Ströndum. Tómas segir að þarna séu náttúruperlur á heimsmælikvarða og að Vestfirðingar verði að átta sig á að það er verið að plata þá.  Orkan fari nefnilega í stóriðju fyrir sunnan.

Ófeigsfjörður er í eyði og er þar einungis sumarábúð. Tvær vatnsmiklar ár renna renna í fjörðin en þær eru Húsá og Hvalá. Hvalá er mesta vatnsfall Vestfjarða og eru áform um að virkja ána. Í Hvalá er Hvalárfoss sem er slæðufoss og einn af fallegri fossum á Vestfjörðum. Það eru fáir sem hafa séð Hvalárfoss þar sem vegurinn endar á hlaðinu á bænum í Ófeigsfirði.  

 

 

Nánar www.ruv.is    www.is.m.wikipedia.is

[email protected]