Virðist ætla að snjóa fram í maí

Ekkert lát virðist ætla að verða á ofankomunni um norðan- og noðaustanvert landið næstu daga og er éljagangur og þaðan af meira kafald í kortunum fram í miðja næstu viku. Hitinn verður frá frostmarkin að átta stigum og verður veðrið hvað skaplegast um sunnanvert landið, en þó verður vindur víðast hvar yfir 10 m/s.  


Enda þótt vegir séu orðnir greiðfærir á Suðurlandi og að mestu á Vesturlandi er því ekki að heilsa í öðrum landshlutum sem eru á að líta eins og harðavetur sé enn við lýði. Enn er snjóþekja á Klettshálsi og Þröskuldum, en ófært er á Steingrímsfjarðarheiði og sömuleiðis norður í Árneshrepp. Hálka eða snjóþekja er mjög víða á fjallvegum Norðaustanlands og þá er ennþá þæfingsfærð á Möðrudalsöræfum og þungfært á þjóðveginum niður í Jökuldal.  Öxi og Breiðdalsheiði eru ófærar, en Vegagerðin tekur fram að unnið sé að mokstri á allra helstu þjóðleiðum sem hafi lokast síðustu daga