Virðiskeðjan í viðskiptum

Sindri Sigurgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands birtir færslu á Facebook síðu sinni. Sindri skrifar að smásöluverslun á Íslandi ætti að íhuga að taka stöðu með bændum við þær erfiðu aðstæður sem nú eru.

Í heiðarlegum viðskiptum þurfi einfaldlega allir í virðiskeðjunni að fá sanngjarnan hlut. Sindri bendir á að milliliðirnir - verslunarkeðjur - krefjist í krafti stærðar verðlækkunar.

Afurðastöðvar með miklar birgðir og erfiðan rekstur láta undan. Verðfall verður á kjötmarkaðii og tímabundin veisla fyrir neytendur.

Reikningurinn fyrir þennan afslátt verður sendur beint til bænda.

Afleiðingin verður áframhaldandi verðlækkun til bænda með tilheyrandi gjaldþrotum og byggðaröskun.

[email protected]