Vinstri grænir æfir út í forsetann

\"Ólafur Ragnar Grímsson tók dagskrárvaldið af forseta þingsins,\" segir varaformaður VG í samtali við Hringbraut.

Mikil reiði ríkir meðal Vinstri grænna vegna inngrips Ólafs Ragnars Grímssonar í stjórnmál landsins. Björn Valur Gíslason, varaformaður VG, segir að Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, hafi ekki vitað hvert tilefni fundar hafi verið á fundi með þingflokksformönnum í gær og hafi ekki rætt við þá eftir fundinn á Bessastöðum að því er hann best vissi.

Í bloggfærslu kallar Björn Valur Ólaf Ragnar \"Gæslumann ríkisstjórnarinnar\" í fyrirsögn eftir atburðarás gærdagsins og vitnar til orða Bjargar Thorarensen lagaprófessors semhafi sagt það sem rétt er að með inngripi sínu í stjórnarkreppuna hafi forseti Íslands „tekið að sér að verða gæslumaður ríkisstjórnarinnar.“ Hvorki meira né minna. En forsetinn hafi gert meira. Hann hafi boðað forseta Alþingis á sinn fund í gær sem hafi ekkert vitað um fundarefnið og niðurstaðan sé að alls sé óvíst hvenær Alþingi komi saman að nýju. \"Fyrir þinginu bíður tillaga stjórnarandstöðunnar um vantraust á forsætisráðherra, ríkisstjórnina, þingrof og kosningar færi á dagskrá þingsins eins og hefði gerst ef boðað hefði verið til þingfundar. Forsætisráðherrann hefur ekki sagt af sér og ríkisstjórnin situr enn. Vantrauststillagan er því í fullu gildi og hefði komið til umræðu á Alþingi í dag að öllu eðlilegu. Forseti Íslands hefur með aðgerðum sínum í dag hafnað þingrofi, bjargað ríkisstjórninni frá falli og komið í veg fyrir kosningar. Hann gerðist gæslumaður ríkisstjórnarinnar,\" segir Björn Valur.

Norskir fjölmiðlar gera í dag grín að stjórnmálaástandinu hér á landi vegna vafa sem skapast hefur um stöðu Sigmundar Davíðs í stjórnmálum en áður en send var yfirlýsing til erlendra fjölmiðla út í gær að hann væri aðeins í leyfi hjólaði Sigmundur Davíð í forsetann og sagði rangt að hann hefði ætlað að knýja fram þingrof laust fyrir hádegi. Ólafur Ragnar segir að fjöldi vitna geti bent á hið gagnstæða en eftir stendur að líkur á kosningum sem fyrst hafa minnkað með því að sjálfstæðismenn og framsóknarmenn vinna nú að nýrri ríkisstjórn með hrókeringum innan stjórnarliðsins.