Áhugafólk um náttúruvernd bendir á hættuna af því að breyta lífríki heilla fjarða, meðal annars með úrgangi frá þúsundum laxa á mjög afmörkuðu svæði, og spor frá Noregi sem hræða.
Hagsmunasamtök í laxveiði benda á að óhjákvæmilega sleppi fjöldi fiska úr kvíunum og geti blandast upprunalegum ósnortnum stofnum í litlum og viðkvæmum ám.
Fleira mætti til telja.
Nú virðist Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður eina flokksins á alþingi sem kennir sig beinlínis við náttúruvernd, hafa tekið af skarið um stefnu flokksins í þessu máli.
Hún birti þessi ummæli á facebook í gærkvöldi:
Og svo að ekkert fari á milli mála, þá átti hún við laxeldi í sjókvíum:
Þarna bætir Lilja Rafney líka við framkvæmdum í gegnum Teigsskóg, sem hefur einnig verið áralangt deiluefni einmitt vegna andstöðu þeirra sem vilja varðveita birkiskóginn þar ósnertan.
Líklega sækir nú hiksti að einhverjum frambjóðendum eða bara almennum flokksmönnum Vinstri grænna sunnan heiða.