Forysta Vinstri grænna getur ekki hugsað sér að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum að loknum kosningum.
Þetta kemur fram í svörum hennar við spurningum Stefáns Jónssonar leikstjóra þess efnis á facebook.
Stefán spurði Katrínu Jakobsdóttur formann og Svandísi Svavarsdóttur þingflokksformann einfaldlega:
Mun forysta Vinstri grænna \"hugsað sér að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki?\"
Svarið barst í gærkvöldi að sögn Stefáns: Nei.
Stefán spurði þær Katrínu og Svandísi ennfremur: Munu Vinstri græn setja nýja stjórnarskrá í forgang strax, komist þau til valda?
Svarið er jafnafdráttarlaust og fyrr: Já.
„Svar við seinni spurningu Stefáns kom frá Svandísi Svavarsdóttur þingflokksformanni.
Fyrra svarið – sem Stefán og fleiri túlka sem nei við samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn – barst hins vegar frá Álfheiði Ingadóttur, sem var eitt sinn þingmaður Vinstri grænna, en óljóst er hvort verður það aftur.“