Bæði Framsókn og Sjálfstæðisflokkur töpuðu fylgi í sveitarstjórnarkosningunum á laugardag. Ekki er víst að þeir haldi samstarfinu áfram þótt þeir hafi fimm manna meirihluta enn.
Framsóknarflokkurinn er þó enn stærstur. Hefur þrjá fulltrúa en tapaði tveimur en fylgið hrapar. Flokkurinn hafði 45,4 prósenta fylgi en er kominn í tæp 34 prósent. Sjálfstæðisflokkur tapaði um 6 prósentum á laugardaginn.
Framsókn fékk í síðustu sveitarstjórnarkosningum hreinan meirihluta en ákvað samt að fara í samstarf með Sjálftæðisflokknum.
Allt annað er uppi á tengingum hjá Vinstri grænum en annars staðar á landinu. VG og óháðir juku fylgi sitt úr 15 prósentum í rúm 24 prósent.