Píratar rifa lítillega vængina í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins í dag en mælast engu að síður langstærsti flokkurinn á landinu með 38 prósenta fylgi, en þeir voru komnir yfir 40% í síðustu könnun blaðsins.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir flokka mest við sig, er nú kominn í 27,6% og er það rétt yfir fylgi flokksins í síðustu alþingiskosningum, sem voru raunar þær næstverstu í sögu flokksins hvað atkvæðamagn varðar. Hinn stjórnarflokkurinn má ágæltlega við una, hreppir nú 12,8% sem er ívið meira fylgi en hann hefur verið að fá í nýjustu könnunum.
Samfylkingin skreppur enn saman, en jafnaðaramenn fengju nú fimm þingmenn, jafnt marga og vinstri grænir, en flokkarnir mælast nú hvor með sín rífu átta prósentin. Þessir stjórnarflokkar síðasta kjörtímabils mega muna sinn fífil fegurri, ná samanlagt ekki 17 prósentum, en voru með yfir 50 prósenta fylgi 2009 og samtals 34 þingmenn.
Björt framtíð er við það að hverfa alveg með innan við tvö prósent.
Könnunin var gerð 8. til 9. mars. Hringt var í 1,082 manns, þar af náðist í 794 og var svarhlutfall 73,4% og tóku 59,3% þeirra afstöðu.