Nokkur bakarí á Íslandi eru byrjuð að selja léttvín og bjór með brauðmeti og öðru hnossgæti í verslunum sínum að erlendri fyrirmynd. Þar á meðal er Sandholt bakarí á Laugavegi og Almar bakarí í Hveragerði og Selfossi. Morgunblaðið greinir frá þessari nýbreytni í dag en þar er rætt við Ásgeir Sandholts, eiganda bakarísins á Laugavegi sem segir jafnt Íslendinga og útlendinga hafa tekið vel í þessa viðbótarþjónustu, en með þessu móti sé hægt að skapa bakaríum sérstöðu með sérstöku áfengisúrvali sem henti mismunandi réttum. Hann nefnir sem dæmi hindberjabjór sem boðinn var til sölu með völdum eftirrétti á dögunum, en nú sé einvörðungu franskur bjór á boðstólum í anda sérréttarins.
"Erlendir ferðamenn nýta sér þennan valkost meira en Íslendingar," segir Almar Þór Þorgeirsson við blaðið en algent sé að fólk fái sér einn bjór eða léttvínsglas með brauði og súpi í hádeginu.