Vinsældir hjólhýsa aukast stöðugt en farið var að markaðssetja þau á Íslandi fyrir rúmum 10 árum en áður höfðu landsmenn ferðast um í fellihýsum og tjaldvögnum þegar haldið var í ferðalög um landið. Miklar framfarir hafa átt sér stað í framleiðslu á ferðavögnum á undanförnum árum og kröfur neytenda um gæði og þægindi aukast stöðugt. Þá er þjónusta við viðskiptavini mjög mikilvæg, bæði hvað varðar sölu á nýjum vögnum og þegar kemur að viðhaldi og endurbótum. Þetta og margt annað verður til umfjöllunar í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld en þá verður fyrirtækið Víkurverk ehf. heimsótt og spjallað við forsvarsmenn fyrirtækisins. Víkurverk er leiðandi aðili í sölu og þjónustu hjólhýsa á Íslandi og býður m.a. hin þekktu hjólhýsi frá Hobby og Adria. Þetta er síðasti þáttur Atvinnulífsins á þessu ári en næsti þáttur verður í janúar 2017. Umsjónarmaður er Sigurður K. Kolbeinsson og myndatökur annaðist Friðþjófur Helgason.
Vinsældir hjólhýsa aukast stöðugt
Fleiri fréttir
Nýjast