Vinsæl loddaralist hjá framsókn

Þorsteinn Pálsson segir að nú beri nýrra við í gagnrýni á vaxtahækkun Seðlabankans; þingmenn forystuflokks ríkisstjórnarinnar gangi þar harðast fram: \"Þeir tala líkt og ábyrgðarlaus stjórnarandstaða gerir venjulega.\"

Vandinn við þessa hörðu gagnrýni, skrifar Þorsteinn, er að hún hittir þá sjálfa fyrir. Gagnrýnin beinist í rauninni að forsætisráðherra, ekki bankanum. Hann nefnir nafna sinn Þorstein Sæmundsson þingmann Framsóknarflokksins sem dæmi: \"Á þriðjudag gagnrýndi hann Seðlabankann fyrir að rýra kjör fyrirtækja sem tekið hefðu á sig verðskuldaðar launahækkanir. Hann staðhæfði jafnframt að Seðlabankinn kynni ekki aðrar leiðir en að hækka vexti. Síðan bar hann salt í sárin með þeim orðum að kjarkleysi og dugleysi bankans væri algjört.\"

Þorsteinn Sæmundsson vilji sumsé að Seðlabankinn stjórni eins og stjórninni hentar og taki tillit til aðgerða hennar: \"Vandinn er sá að samkvæmt lögum er bankanum óheimilt að leggja sanngirnismat til grundvallar vaxtaákvörðunum.\"

Þorsteinns segir engu að síður hljóti menn að leggja eyrun við þegar þessi helsti talsmaður forystuflokks ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum tali, því hafi þingmaðurinn lög að mæla séu þetta svo stór orð að erfitt hljóti að vera fyrir seðlabankastjóra og peningastefnunefnd að sitja undir þeim án viðbragða: \"Fari aftur á móti svo að ekki reynist unnt að finna orðum þingmannsins stað eru þau áfellisdómur á forsætisráðherra og ríkisstjórn hans. Hún þarf þá að hugsa sinn gang,\" skrifar Þorsteinn og bætir við: \"Eftir þessa stórskotahríð er útilokað að bæði seðlabankastjórnin og ríkisstjórnin geti setið eins og ekkert hafi í skorist; nema að sjálfsögðu að báðir þessir máttarstólpar stjórnkerfisins séu á einu máli um  að orð þingmannsins séu ekki marktæk.\"