Konur á Íslandi hafa það best á vinnumarkaði ef marka má nýútkomna úttekt ráðgjafafyrirtækisins PriceWaterhouseCoopers. Úttektin nær til ársins 2017 og í henni eru borin saman ríki sem tilheyra Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD). Ísland var sömuleiðis í efsta sæti í úttekt fyrirtækisins fyrir árið 2016. Fréttablaðið greinir frá.
Tekið er tillit til ýmissa þátta sem endurspegla starfsumhverfi kvenna í úttektinni, þar með talið jafnrétti þeirra til tekna, tækifæri á vinnumarkaði og öryggi í starfi.
Atvinnuleysi kvenna er minnst hér á landi, eða 2,4 prósent. Sé litið til launamuns kynjanna er Ísland í 18. sæti listans, með 15,4 prósent launamun. Með því að loka á launabil kynjanna myndu tekjur vinnandi kvenmanna sem tilheyra ríkjum OECD ríkjanna aukast um tvær trilljónir bandaríkjadala.
Íslendingar leiða listann þegar kemur að hlutfalli vinnandi kvenna. Bent er á að með því að hækka hlutfall vinnandi kvenna upp í 69 prósent, til jafns við Svíþjóð, sé hægt að auka verga landsframleiðslu allra OECD ríkjanna um samtals sex trilljónir bandaríkjadala. Samstillt átak þurfi þó til að ná slíku enda fjölmörg ríki eftirbátar Íslands, Svíþjóðar og fleiri ríkja í þeim efnum.
Þegar allir þættir sem litið er til í úttektinni eru teknir saman skipa Norðurlöndin fimm af tíu efstu sætunum. Þar er Svíþjóð í öðru sæti, Noregur í fjórða sæti, Danmörk í því sjöunda og Finnland í níunda sæti.