Einn sérstæðasti og magnaðasti listamaður þjóðarinnar og kunnur arkitekt um heim allan, Guðjón Bjarnason er gestur Sigmundar Ernis í hinum vinsæla viðtalsþætti Mannmál á Hringbraut í kvöld.
Guðjón er ekki einasta sér á báti í tilvijanakenndri sprengilist sinni heldur fer hann líka ótroðnar slóðir í byggingalistinni, en nýlega var vígt feikilega stór tónleikahöll í norðausturhluta Indlands sem minnir um margt á skýjaborg ofan í dalverpi, en stórhýsið hannaði Guðjón þvert á byggingahefð Indverja og setur þar almenning í forsætið, ekki yfirstéttina sem vanalega hefur viljað fela sig í bakherbergjum hallanna sinna.
Guðjón er sannkallaður bóheim, lifir og starfar jöfnum höndum á Indlandi, Íslandi og New York; daglegu ati sinnir hann í Pondycherry syðst á Indlandi, batteríin endurhleður hann á sumrin heima á Íslandi, en endurmenntun sína og listaræna hvatningu sækir hann til New York.
Í viðtalinu fjallar Guðjón á heillandi máta um þessi ólíku samfélög í lífi sínu, svo og sýn sína á listir, menningu og húsagerð.
Mannamál eru á dagskrá klukkan 20:30 í kvöld.