Vinnumarkaðurinn

Skipt eftir atvinnugreinum hefur launþegum fjölgað milli ára hjá launagreiðendum í byggingariðanaði og í ferðaþjónustu. Launþegum hefur fækkað í sjávarútvegi.

Að jafnaði voru 17.166 launagreiðendur á Íslandi frá júlí 2016 til júní 2017. Þeir greiddu 184.200 einstaklingum laun sem er aukning samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Skráð atvinnuleysi á Íslandi í júní var 1,8%. Atvinnuleysi minnkaði alls staðar á landinu og minnkaði það hlutfallslega meira á landsbyggðinni en á höfurborgarsvæðinu.

Vinnumálastofnun hefur gefið út 938 atvinnuleyfi til útlendinga á þessu ári.

Fleiri eru nú á atvinnuleysiskrá í sjávarútvegsgreinum en fyrir ári því atvinnulausum sjómönnum og véla- og vélgæslufólki fjölgaði frá júní 2016. 

 

 

 

Nánar www.vinnumalastofnun.is www.hagstofa.is

[email protected]