Vinnumálastofnun barst hótun

Vinnumálastofnun var lokað í morgun eftir að hafa borist hótun í tölvupósti. Starfsfólk var beðið um að draga niður gluggatjöld og halda sig frá gluggum af öryggisástæðum. Búið er að opna stofnunina að nýju í samráði við lögreglu. Mbl.is og RÚV.is eru meðal þeirra sem greina frá.

Eftir að hafa rannsakað málið komst lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til að óttast yfirvofandi árás. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að henni hafi verið tilkynnt um hótunina og að hún hafi upplýsingar um aðilann sem standi að baki henni. Sá er staddur erlendis og er málið unnið í samvinnu við þarlend yfirvöld.

Unnur Sverrisdóttir, starfandi forstjóri Vinnumálastofnunar, staðfesti í samtali við Mbl.is að stofnuninni hefði borist hótunin og bætti við að hún hafi ekki talið starfsfólk vera í hættu á meðan lokunin stóð yfir.