Vinnum agað og sýnum skynsemi

Eyjólfur Árni Rafnsson formaður Samtaka atvinnulífsins (SA) er óbanginn við að sýna það svart á hvítu að loforðaflaumur framboðanna felur í sér allt að 100 milljarða aukin útgjöld án þess að þessi sömu framboð hugi að fjármögnun þessara loforða.

Eyjólfur Árni bendir bendir á að eina ferðina enn keppast framboð við að yfirbjóða hvert annað á óábyrgan hátt með bólgnum kosningaloforðum en þetta lýsi grundvallarvanda íslenskra stjórnmála og framboðin komast upp með slíkt ábyrgðarlreysi.

Kann þetta að vera meginástæða þess vantruaust sem framboðin búa við hjá þjóðinni segir Eyjólfur Árni. 

Vegna þessara orða Eyjólfs Árna má til dæmis minna á útgjaldaloforð Samfylkingarinnar og Vinstri-grænna en á þeim bæ er ekki að sjá skýr svör við því hvaðan tekjurnar fyrir þessu öllu eiga að koma og þykja einkum svör oddvita Vinstri - grænna vera naum.

[email protected]