Vinnueftirlitið hefur bannað brugghúsum um allt land að nota ákveðin bruggtæki við framleiðslu á bjór. Um er að ræða kínversk bruggtæki. Vinnueftirlitið segir að þegar ákveðinn mikill þrýstingur myndast í tækjunum geti þau sprungið. Telur Vinnueftirlitið því að búnaðurinn geti skapað hættu gagnvart gestum og starfsmönnum brugghúsanna. Sjö af þeim tíu fyrirtækjum sem nota bruggtækin hafa kært ákvörðun Vinnueftirlitsins til velferðarráðuneytis. Stundin greinir fá þessu.
Framleiðendurnir sem um ræðir eru RVK Brewing Company, JG Bjór og Bastard Brew & Food í Reykjavík, Ölverk í Hveragerði, Jón Ríki á Höfn, Smiðjan Brugghús í Vík, Brugghúsið Draugr í Hvalfirði, Dokkan brugghús á Ísafirði, The Brothers Brewery í Vestmannaeyjum og Austra Brugghús á Egilsstöðum. Ekki er vitað hvort búnaðurinn sé enn í notkun hjá þessum aðilum.
Vinnueftirlitið sendi frá sér tilkynningu í sumar varðandi bruggtækin, en þar segir að búnaðurinn uppfylli ekki þær öryggiskröfur sem lög segja um.
„Vinnueftirlitið lítur það alvarlegum augum þegar slíkur þrýstibúnaður er í notkun þegar ekki liggur fyrir með viðunandi hætti að búnaðurinn uppfylli þær öryggiskröfur sem gerðar eru til þeirra lögum samkvæmt. Ef slíkur búnaður uppfyllir ekki þær öryggiskröfur sem gerðar eru til hans þá er sprengihætta af honum.“
Þá segir Vinnueftirlitið að sprengihætta geti skapast við notkun á búnaðnum.
„Alltaf þegar um er að ræða samþjappaðar lofttegundir getur skapast sprengihætta og eykst hættan þegar tankarnir stækka (rýmdin eykst) og þrýstingur eykst. Getur því veruleg hætta stafað af slíkum búnaði sem staðsettur er þar sem fólk er, hvort sem það er að störfum eða sér til ánægju.“