Vinnueftirlitið hefur bannað alla vinnu við Vesturberg 195 í Breiðholti þar sem fyrirtækið Fylkir ehf. er í framkvæmdum. Í skýrslu Vinnueftirlitsins um málið kemur fram að veruleg hætta sé á ferðum fyrir lífi og heilbrigði starfsmanna. Voru fallvarnir á verkstað ófullnægjandi og tali eftirlitið að slíkt skapi mikla slysahættu fyrir starfsmenn á svæðinu. Þá vantaði öryggis- og heilbrigðisáætlun.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Vinnueftirlitið hefur afskipti af framkvæmdum fyrirtækisins á þessum stað. Í desember síðastliðnum var einnig sett bann við allir vinnu einnig vegna öryggisatriða. Þá voru einnig merki um það að starfsmenn væru með búsetu á verkstað.