Hjartaknúsarinn Måns Zelmerlöw frá Svíþjóð þykir enn líklegastur til að sigra í Eurovision í kvöld samkvæmt veðbönkum. Það yrði sjötti sigur Svía, en engin önnur þjóð hefur átt eins miklu láni að fagna í Söngvakeppni Evrópu frá upphafi.
Polina Gagarina frá Rússlandi þykir einnig líklegur sigurvegari, en margir óttast að heimspólitíkin og aðgerðir Rússa í Úkraínu kunni að hafa áhrif á árangur hennar í keppninni í ár.
Ástralinn Guy Sebastian kemur einnig firnasterkur inn, en þetta er í fyrsta sinn sem Ástralía fær að vera með. Eurovision nýtur mikillar hylli í Ástralíu og er talið að allt að 3 milljónir manna fylgist að jafnaði með keppninni. Það þótti því þjóðráð að bjóða þeim til þátttöku í tilefni af 60 ára afmæli keppninnar.
Og það dugir ekki að hengja haus þó framlag Íslands hafi dottið út í forkepnninni á fimmtudag, þjóðin fylgist eflaust andaktug með keppninni sem hefst klukkan 19:00.