Vinna gegn vannæringu eldra fólks

Verkefnið „Máltíðir eftir spítalaútskrift“ var nýlega sett af stað. Í því felst þróun  rétta fyrir eldra fólk með tyggingar og kyngingar örðugleika og hinsvegar íhlutun, þar sem upplýsingar munu fást um næringu og næringarástand aldraðra í heimahúsum. Niðurstöður úr íhlutunarþætti verkefnisins geta veitt upplýsingar um þær breytingar sem mögulega þurfa að eiga sér stað hvað varðar útskrift aldraðra einstaklinga og leiðbeiningar um þjónustu við þennan útsetta hóp.

Vannæring aldraðra er vel þekkt vandamál. Meðal legutími á sjúkrahúsi er stuttur sem veldur því að ekki er alltaf tími til að leiðrétta næringarástand eldri sjúklinga. Því er mikilvægt að veita næringarmeðferð eftir útskrift, til að koma í veg fyrir afleiðingar sem vannæring hefur á heilsu og færni, segir í tilkynningu Matís.

Samstarfsaðilar Matís í verkefninu eru Háskóli Íslands, Grímur Kokkur en auk þessa hafa Sláturfélag Suðurlands og Mjólkursamsalan aðkomu að verkefninu sem er styrkt af Rannís.