Það er í hæsta máta undarlegt að fara fram með mál sem er í andstöðu við langstærstan hluta þjóðarinnar - og það í nafni frjálslyndis í aðgengi að áfengi á sama tíma og allar þjóðir í kringum okkur eru að snúa af leið frelsisins í þessum efnum.
Þetta var tónninn í Ritstjóraþætti gærkvöldsins, sem er með líflegasta móti, en sessunautar Sigmundar Ernis eru að þessu sinni Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri og útgefandi Fréttatímans og Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri Vikunnar - og er nú hægt að sjá þau hér á vef stöðvarinnar. Þau eru sammála um að það vanti akkúrat ekkert upp á aðgengi að áfengi á Íslandi - og í þessu tilviki verði lýðheilsa alls almennings að vega þyngra en nýfrjálshyggja fámenns hóps í landinu, en raunar sé það umhugsunarvert, bendir Gunnar Smári á, hvað ríkjandi nýfrjálshyggjustjórn, eins og hann kallar hana, ætli sér að vera mjög í andstöðu við vilja almennings í mörgum málum - og þar nefnir hann einkarekstrartilburði í heilbrigðismálum á sama tíma og neyðarkall berst frá Landspítalanum og varðstöðu um gömul kerfi sem mikill meirihluti þjóðarinnar kæri sig ekkert um, svo sem búvörukerfið og kvótakerfið.
Sjúkleiki samfélagsins var og til umræðu, sú undarlega staðreynd að Íslendingar hafi verið sér á parti á meðal þjóða heims í skattaskjólsþjónustu - og þar þurfi ekki einu sinni að notast við höfðatöluna til að sjá augljós merki þess að engri annarri þjóð er jafn annt um að fela tekjur sínar á aflandseyjum en Íslendingum.
All nokkrum orðum er vitaskuld eytt á framferði Trumps í Vesturheimi sem hugsanlega og mjög líklega á eftir að auka á vinsældir sínar heima fyrir með því að berjast gegn dómskerfinu, hann sé jú einfaldlega að reyna að verja sitt fólk, eitthvað sem stjórnkerfinu - establismentinu - sé sama um. Hér gildi ef til vill einu þótt íbúar fjarri Bandaríkjunum fussi og svei og ferleegri hneykslan sinni, heimafólkið hugsi margt hvert öðruvísi og hrífist af fasískum tilburðum karlsins í Hvíta húsinu.
Og svo er það bág staða íslenskra fjölmiðla í dag, altso þeirra sem eru utan fjárlaga, en stutt skeið frjálsrar fjölmiðlunar á Íslandi virðist brátt að baki, fari fram sem horfir, nema hreinlega að almenningur komi fjölmiðlum á borð við Fréttatímanum til hjálpar, en Gunnar Smári segir að viðbrögð fólks við beiðni blaðsins um almennan fjárstuðning séu vonum framar.
Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00.