Mjög hvasst er orðið sunnanlands og mælist vindur í hviðum um 40 metrar. Veðurspáin bendir til að vindur fari í 60 metra á sekúndu sums staðar á landinu.
Lífshættulegt er að vera á ferð við slíkar aðstæður og hefur umferð nánast lagst af.
Vindstyrkurinn getur orðið mjög misjafn milli ólíkra svæða. Þannig gæti Skagafjörður orðið illa úti í ofsa- eða jafnvel fárviðri frá og með klukkan 18 í dag á meðan vind mun vart hreyfa enn litlu austar.
Áhrifa veðursins gætir fyrst á Suðurlandi en austa og norðar mun óveðrið hafa meiri áhrif í nótt og í fyrramálið og hefur skólahaldi í nokkrum norðlenskum skólum þegar verið aflýst á morgun.
Líklegt er að rafmagnstruflanir verði vegna óveðursins sem stendur að austan.