Það dúrar á lofti eftir vindasama tíð á Íslandi og hvöttu starfsmenn á Veðurstofu Íslands landsmenn til að njóta dagsins og vel fram á morgundaginn þegar haft var samband við þá í morgun. Næsta áhlaup kæmi annaðkvöld úr suðaustri en væri svo veikulegt að vart væri orð á gerandi; veturinn væri greinilega heldur að lina tök sín á túndrunni í norðri.
Dagurinn í dag mun vera sá 18. lygni frá áramótum, en alla hina 58 dagana hefur verið gefin út stormviðvörun frá Veðurstofu Íslands. Það er því að vonum að starfsfólk andi léttar fyrir hönd landsmanna.
Það er sumsé suðlæg eða breytileg átt í kortununum, 3 til 8 m/s, bjart á köflum og stöku skúrir eða él, en úrkomulítið norðanlands. Það styttir upp í nótt og verður víða bjart á morgun, en vaxandi suðaustanátt eftir hádegi og þykknar upp með snjókomu, slyddu eða rigningu sunnan- og vestanlands. Hiti verður um eða rétt yfir frostmarki.
Færð á helstu þjóðleiðum er víðast hvar góð þótt víða gæti hálku.