Vínbúðum lokað komi til verkfalls

\"Verk­fall þýðir lok­un vín­búða og dreif­ing­armiðstöðvar,“ seg­ir Sigrún Ósk Sig­urðardótt­ir, aðstoðarfor­stjóri ÁTVR, um hugs­an­legt verk­fall ríkisstarfsmanna innan SFR, en meiri líkur en minni eru taldar á vinnustöðvun þeirra.

Þetta er haft eftir Sigrúnu í Morgunblaðinu í dag, en þar er minnt á að trúnaðarmannaráð SFR hafi komið sam­an í fyrra­dag til að taka ákvörðun um alls­herj­ar­at­kvæðagreiðslu um verk­fall. Flest­ir starfs­manna Vín­búðanna séu fé­lags­menn í SFR og því myndi verk­fall þýða lok­un.

Alls eru 49 vín­búðir um allt land en tekj­ur af sölu áfeng­is voru um 20 millj­arðar króna í fyrra. Alls voru seld­ar 19,2 millj­ón­ir lítra af áfeng­um drykkj­um á síðasta ári.

Svan­hvít Jak­obs­dótt­ir, for­stjóri Heilsu­gæslu höfuðborg­ar­svæðis­ins seg­ir í sömu frétt Morgunblaðsins að komi til verk­falls muni það hafa víðtæk­ar af­leiðing­ar: \"Verk­fall myndi hafa veru­leg áhrif á þjón­ustu okk­ar. Þetta nær til svo margra hjá okk­ur. Á und­anþágulist­an­um er aðeins einn starfsmaður í mót­töku á hverri heilsu­gæslu­stöð þannig að þetta mun hafa mik­il áhrif í kring­um klín­íska starf­semi.“ Hún seg­ir einnig að verk­fall sjúkra­liða myndi hafa gríðarleg áhrif á heima­hjúkr­un: \"Það verður þungt að missa þá starfs­menn út,“ seg­ir Svan­hvít við blaðið.