Vinaþjóð að stinga okkur í bakið!

\"Framkoma þessara vinaþjóða í okkar garð er orðin óþolandi í viðræðum um skiptingu á deilistofnun. Mest sárnar manni að Færeyingar skuli viðhafa slíka framkomu gagnvart okkur að ekki er hægt að líkja því við annað en rýtingsstungu í bakið.\"

Þetta skrifar Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis á fésbókarsíðu sína í dag í tilefni af því að nú eru framundan tvíhliða viðræður við Færeyinga sem meðal annars snúist um aflaheimildir í íslenskri lögsögu: \"Ég sé ekki annað útspil en að segja upp samkomulagi við Færeyinga og Norðmenn vegna aflaheimilda hér við land og hefja tvíhliða viðræður við Grænlendinga m.a. vegna markrílsins,\" skrifar Jón að auki.

Hann segir viðskiptabann á Rússland hitta Íslendinga harðar fyrir en nokkra af vinaþjóðum þeirra: \"Í ljósi þess að ekkert tillit er tekið til þessara miklu hagsmuna í viðræðum m.a. við ESB hljótum við að þurfa að opna á endurskoðun í afstöðu okkar í því máli. Vissulega er um mikilvægt prinsipp mál að ræða, en það má öllum vera ljóst að ekkert ríki ESB myndi sætta sig við að þurfa að færa slíkar fórnir án þess að \"vinaþjóðir\" þess gæfu því gaum og tækju til þess tillit á öðrum vettvangi.\"