Vín og bjór fyrir boðsgesti, aðra ekki

Forysta Knattspyrnusambands Íslands liggur undir ámæli fyrir að bjóða aðeins útvöldum gestum á landsleikjum vín og bjór á afmörkuðu svæði í nýju stúkunni í Laugardal á meðan allur almenningur verður að sætta sig við áfengislausa drykki í gömlu skálunum á jarðhæð.

Mikill fjöldi þeirra miða sem er í boði á landsleiki Íslands í fótbolta rennur til styrktaraðila KSÍ, en þar í hópi eru mörg þjóðkunn stórfyrirtæki hér á landi. Handhafar þessara miða hafa aðgang að lokuðu svæði á efstu hæð nýju stúkunnar í Laugardal þar sem þeir geta bæði fyrir leik og í hálfleik fengið sér bjór og vín ásamt öðrum léttum veitingum. Almenningi stendur þessi sama þjónusta ekki til boða og hefur það valdið ósætti meðal fjölmargra dyggra stuðningsmanna landsliðsins á undanliðnum árum sem líta á það sem sjálfsagt mál að hægt sé að kaupa sér bjór og léttvin á leikstaðnum, svo sem þekkist á nær öllum leikvöngum landsliða í nágrannalöndum Íslands. Þar fyrir utan benda gagnrýnendur þessa fyrirkomulags á að að nær öllum menningarstöðum, svo sem leikhúsum, sé vín og bjór til sölu fyrir alla gesti, en ekki aðeins útvalda. 

Álíka kerfi mun vera til staðar á leikjum margra knattspyrnu- og handboltaliða hér á landi, en þar geta ársmiðahafar fengið aðgang að afmörkuðu rými þar sem bjór og léttvín er til sölu.

Það er því ennþá svo á Íslandi, ólíkt öðrum löndum Evrópu, að bjór er ekki fyllilega leyfður, nema útvöldum.