Vimy hálsinn 1917-2017

Orrustan um Vimy hálsinn stóð stutt. Vimy hálsinn er í norðvestur Frakkland. Orrustan stóð frá 9.til 12.apríl 1917. 

Í minningarbók Íslenskra hermanna sem út kom í Kanada árið 1923 er skrá yfir þá Vestur-Íslendinga sem gerðust hermenn.

Og sagt er frá þátttöku Vesturheims Íslendinga frá Bandaríkjunum og Kanada í styrjöldinni. 

Ekki eru til óskeikular skýrslur um alla þá Vesturheims-Íslendinga frá Kanada og Bandaríkjunum sem gegndu hermennsku í fyrri heimsstyrjöldinni.

En líklega hafa eittþúsund tvöhundruð fjörutíu og fimm Vesturheims Íslendingar verið hermenn. Eitthundrað fjörutíu og fimm létu lífið.

Níutíu og fjórir féllu. Flestir þeirra á Vesturvigstöðvunum í Frakklandi.

Af þeim sem innrituðu sig í herina voru þrjúhundruð níutíu og einn fæddir á Íslandi en hinir í Kanda og Bandaríkjunum.

Áform kanadísku herstjórnarinnar gengu eftir.

Vimy hálsinn var tekinn hinn 12.apríl 1917. Margir Íslendingar í Kanada hernum tóku þátt.

Mannfall í liðí Kanada var nokkuð og fjöldi særðra mikill.

Þessa atburðar er nú minnst í Kanada og rifjuð er upp þátttaka hermanna af íslenskum uppruna í Íslendingabyggðum í Kanada.