Viltu gjöra svo vel að halda munni!

„Viltu gjöra svo vel að halda þínum munni.“

Þetta sagði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, vegna framíkalla þingmanna á þingfundi í morgun en óvenju róstusamt hefur verið á þingi síðasta sólarhring.

Umræða Birgittu tengdist ekki uppþotinu í gærkvöld en það hefur hleypt mjög illu blóði í suma þingmenn að Lilja Rafney, þingmaður VG, skyldi þá segja flissandi þingmann undir áhrifum á þingfundi eins og Hringbraut hefur fjallað um.

Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokks, sagði á þingfundi í morgun að ekki væri hægt að sitja undir þeim ummælum. Annað hvort yrði Lilja Rafney að upplýsa hvaða þingmann hún ætti við eða biðjast afsökunar. Þorsteinn ætlar að taka málið upp í for­sæt­is­nefnd þings­ins þar sem hann á sæti „svona áburður er óþolandi.“

For­seti Alþing­is segist líta málið al­var­leg­um aug­um. Í morgun kom fram að hann hefði reynt að ræða málið við Lilju Raf­neyju en án árangurs.

Hringbraut hefur sent Lilju formlega fyrirspurn vegna sama máls.