Vill vopnahlé í fiskveiðideilum

"Síðasta ríkisstjórn reyndi að leysa fiskveiðimálin enda hafði hún lengi haft stór orð uppi um það," skrifar Þorsteinn Pálsson í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is þar sem hann greinir pólitíska stöðu í fiskveiðistjórnarmálum. "Þegar á reyndi voru stjórnarflokkarnir aftur á móti svo sundraðir að þeir gátu ekki komið sér saman innbyrðis og því síður við stjórnarandstöðuna."


Hann segir svipaðar aðstæður vera uppi núna. "Stjórnarandstaðan getur verið á móti en hefur ekki lausnir sem samstaða er um fremur en ríkisstjórnin."


Þorsteinn, sem gegndi embætti sjávar´´utvegsráðherra um árabil leggur þeta til: "Við þessar aðstæður væri sennilega skynsamlegast að gera vopnahlé. Setja mætti bráðabirgðaákvæði í gildandi lög um úthlutun aflaheimilda í makríl næstu tvö árin eða út þetta kjörtímabil. Það myndi alltént gefa mönnum svigrúm til að leita lausna í víðara samhengi. Pólitíska klípan er sú að menn vita vel hvað þeir vilja ekki en eru sundraðir um það sem þeir vilja."


Hann bendir ennfremur á: "Með lengri umhugsunarfresti væri vissulega verið að víkja til hliðar eðlilegum kröfum um stöðugleika til lengri tíma. En  vopnahlé þarf ekki að vera verri kostur en áframhaldandi stríð."