Fyrirhugaðar breytingar á núverandi námslánakerfi munu draga úr stuðningi hins opinbera við nám og auka miðstýringu með tilheyrandi frelsisskerðingu. Þetta segir Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna í pistli í Fréttablaðinu í dag. Hann telur það hyggilegt að viðhalda núverandi námslánakerfi, helst með stífari tekjutengingu afborgana.
Í pistli sínum fjallar hann um fyrirhugaðar breytingar á Lánasjóði íslenskra námsmanna og leyfir sér að efast um kosti þeirra. Hann segir breytinguna boða fráhvarf frá því kerfi sem hér hefur verið við lýði undanfarin ár: „...kerfi sem byggir á lágum vöxtum og tekjutengdum afborgunum. Er boðuð breyting líkleg til að verða til góðs? Ég leyfi mér að efast um það ef hugsunin er sú, sem mér sýnist vera, að skerða eigi kerfið almennt sem stuðningskerfi við námsmenn og auka áhrif ríkisins í ákvarðanatöku einstaklinganna hvað varðar námsval þeirra.\"
Hann gagnrýnir jafnframt aldurstengingu á rétti til námslána og segir hana með öllu óskylda framvindu í námi: „...spyrja má hvort það skapi einhvern vanda ef einstaklingur fer á hálfum hraða í gegnum nám – og fengi þá hálfan stuðning? Ástæður gætu verið uppeldi barna, vinna með námi eða einhverjar persónulegar aðstæður eða óskir. Það er fullkominn misskilningur af hálfu stjórnvalda að líta svo á að best sé að allir ljúki námi strax!\"
Ögmundur telur menntamálaráðherra og formann LÍN vilja ráða námsvali Íslendinga: „Auðvitað á ríkið að hafa stefnu varðandi hvað boðið er upp á í skólakerfinu en einstaklingurinn á engu að síður að geta horft til allra átta – innan lands sem utan þegar hann ákveður hvernig og á hvaða sviði hann vill beina starfskröftum sínum.\"
Ögmundur segist óttast fyrirhugaðar breytingar og telur þær muni ýta undir miðstýringu og frelsiskerðingu einstaklingsins: „Ég tel hyggilegt að við höldum okkur við núverandi námslánakerfi, helst með enn stífari tekjutengingu afborgana. Verði farið út á boðaða braut þykir mér sýnt að draga muni úr stuðningi hins opinbera við nám og að aukast muni miðstýring á því sviði með tilheyrandi frelsisskerðingu.\"
Undir lok pistilsins biðlar Ögmundur til ráðamanna að hækka ekki þröskulda. Sú tvíþætta hætta sé fyrir hendi að fólk neyðist til að fá hjálp frá bönkunum og í kjölfarið muni námskostnaður hækka. „Námsárin eru skemmtilegt æviskeið. Nám á að vera öllum aðgengilegt á kjörum sem ekki eru sligandi út lífið. Nema vilji sé til að greiða laun út starfsævina í samræmi við afborganir af hávaxtalánum. Það er óhagkvæmt þegar dæmið er til enda reiknað.\"