Forsetaframbjóðandinn Hildur Þórðardóttir sagði í viðtali á Hringbraut að tími sé kominn til að öðruvísi og friðsamlegri forseti setjist á Bessastaði. Forseti sem stjórnar með frið í fyrirrúmi en ekki óttastjórnun. Vilji fólk meiri sátt og traust í samfélaginu sé hún besti kosturinn í þessum kosningum.
Ala á ótta og þykjast svo bjarga
Hildur sem er þjóðfræðingur og rithöfundur segist trúa því að hún gæti náð kjöri eins og hver annar þótt fylgi hennar mælist vart í skoðanakönnunum. Hún er gagnrýnin á kannanir sem hún telur að séu notaðar þeim í hag sem mesta fylgið fá í mælingum. Hún segist vilja breyta stjórnkerfinu, draga úr karllægum eiginleikum og óttastjórnun í samfélaginu. Hún segir valdhafa í dag stjórna í skjóli feðraveldis, þeir aliá ótta til þess að geta svo komið fram og sagst ætla að bjarga þjóðinni. Þetta endurspeglist í umfjöllun fjölmiðla.
Breyta stjórnarskár og stjórnkerfinu
Hildur vill verða forseti sem talar fyrir frið og friðsamlegum þingstörfum Alþingismanna. Hún myndi beita sér á þann máta að hún yrði talsamaður slíkra gilda. Hún vill breytta stjórnarskrár sem færi völd meira til almennings og segist talsmaður þess að ráðherrar sitji ekki á þingi og ríkisstjórnir séu fagstjórnir.
Þekkir útilokun samfélagsins
Hildur sem á tvo unglingsstráka segist þekkja vel hvernigfólk verður útundan í samfélaginu og valdalíkur stjórni ferð. Hún hefur unnið sjálfboðalistarf fyrir Hugarafl og Samhjálp en sjálf á hún son með geðraskanir. Sú reynsla hafi mótað hana og hennar viðhorf til samfélagsins sem í dag útiloki marga frá þátttöku og dragi úr verðleikum þeirra sem séu ekki þóknanlegir þeim sem völdin hafa.
Hildur hefur gefið út fjórar bækur sem nefnast Taumhald á tilfinningunum - leið til betra lífs, Finndu styrkinn til að gera það sem þú vilt, Heal Yourself to Happiness og skáldsöguna Á leið stjarnanna og vindsins. Hildur bjó um tveggja ára skeið bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Viðtalið við Hildi í heild er hér: