Vill útlent eignarhald á bönkunum

Höskuldur Ólafsson, forstjóri Arion banka, sér fyrir sér að erlendir aðilar verði meðal nýrra eigenda stóru viðskiptabankanna þegar þeir fara úr höndum kröfuhafa og ríkisins. Af stórum innlendum eigendum séu lífeyrissjóðirnir líklegastir.
 
Þetta er meðal þess sem fram kom í ítarlegu viðtali Páls Magnússonar við bankastjórann í þættinum Þjóðbraut á  miðvikudagskvöld, en í viðtalinu er Höskuldur alls ófeiminn við að viðurkenna að salan á hlutum bankans í Símanum svo skömmu fyrir hlutafjárútboð hafi verið misráðin og að bankinn muni af því tilefni endurskoða vinnubrögð sín að þessu leyti.
 
Þegar talið berst að hugsanlegum samfélagsbanka á þessu sviði viðskipta setur Höskuldur í brýnnar: \"Það verður að skilgreina hvað átt er við með hugtakinu samfélagsbanki áður en hægt er að taka afstöðu til málsins. Er það t.d. sama fyrirbærið og Íbúðalánasjóður sem rekinn er með tapi ár eftir ár á kostnað skattgreiðenda,\" spyr bankastjórinn í tilefni af hugmyndum framsóknarmanna um þessa nýju tegund bankaþjónustu.
 
Þjóðbraut er hægt að nálgast í klippum eða í heild hér á hringbraut.is.