Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, lagði til á Alþingi í vikunni að bjalla forseta Alþingis yrði fjarlægð úr þingsalnum. Helga segist vera nokkuð sama hvað verði gert í staðinn, svo lengi sem áheyrendur þurfi ekki að heyra stanslausu óhljóðin í bjöllunni.
Ein hugmyndin væri að forseti myndi hreinlega grípa fram í, vera með hamar til að slá í borðið eða eitthvað sem er minna óþolandi en hljóðið í bjöllunni. Hann segir að líklegast væri áhrifaríkast að hafa titrara undir gólfi ræðumanns sem hristist hraðar og hraðar því lengra sem ræðumaður fer yfir tímann. Helgi segir það vera í lagi þó bjölluhljómurinn heyrist í þingsal, en hann sé sérstaklega leiðinlegur í sjónvarpinu svo einfaldast væri jafnvel að sía hljóðið úr upptökunum.
Þetta kemur fram í svari Helga Hrafns við fyrirspurn lesanada hjá upplýsingaveitunni Spyr.is, en hún var svohljóðandi: Hvað myndir þú vilja að gert væri í staðinn fyrir að hringja bjöllunni í þingsal? Þarf ekki að vera eitthvað sem stoppar fólk af ef það fer langt yfir ræðutímann?
Svar Helga Hrafns var á þennan veg: \"Mér er í sjálfu sér sama, svo lengi sem eitthvað er gert til þess að áheyrendur þurfi ekki að líða fyrir misbresti í ræðuhöldum þingmanna. Ein hugmynd er sú að forseti einfaldlega grípi fram í. Önnur er sú að hann hafi hamar eða eitthvað þvíumlíkt í staðinn, þ.e. eitthvert verkfæri sem gefur frá sér hljóð sem er minna óþolandi í upptöku en kannski jafn áberandi fyrir ræðumanni. Enn eina þykir mér hugsanlega geta verið áhrifaríkust, en það er að koma fyrir aflmiklum titrara undir gólfi ræðumanns, sem hristist síðan af afli þegar tíminn líður og því hraðar sem lengra sem ræðumaður fer yfir tímann. Það er ólíklegt að þingmenn sæju ræðum sínum sóma af nýtingu slíks úrræðis.
En kannski er þetta miklu einfaldara; kannski er hægt að einfaldlega sía þorrann af þessu hljóði úr upptökum þannig að það heyrist fyrst og fremst í þingsal. Það væri í sjálfu sér besta lausnin. Mér er alveg sama um bjölluhljóminn í þingsal, enda myndi hann duga til að menn almennt færu ekki fram úr ræðutíma ef hann væri það pirrandi þarna inni. Það er bara áhlustun í útsendingu sem verður svo þreytandi við þetta,\" ´segir í svari þingmannsins á Spyr.is.