Pétur Gunnarsson, blaðamaður ætlar að tilnefna Jóhannes Kr. Kristjánsson blaðamann til fálkaorðunnar fyrir ómetanleg störf í þágu íslensku þjóðarinnar með Kastljósþættinum 3. apríl sl.
\"17. júní verður e.t.v. síðasta skipti sem ÓRG veitir orðuna eftir tillögum sem orðunefnd undir stjórn Guðna Ágústssonar leggur fyrir hann, að fengnum tilnefningum almennings. Ég hef aldrei sent inn tilnefningu fyrr en get ekki ímyndað mér að nokkur maður hafi betur unnið til orðunnar en Jóhannes,\" skrifar Pétur í færslu á facebook.
\"Mér hefur sannast sagna aldrei fyrr en nú fundist að nokkur maður ætti skilið að fá þessa orðu yfirleitt. Það er ekki ástæða til að draga það um einn dag að senda inn þessa tilnefningu. Þótt ég telji málið óumdeilt býst ég við að því fleiri sem tilnefna, því erfiðara verði að sniðganga Jóhannes við afhendinguna 17. júní. Þess vegna væri gaman ef fleiri slægjust í hópinn og sendu líka inn tilnefningu,\" skrifar Pétur Gunnarsson.