Vill tífalda listamannalaun: „Listafólk stendur með okkur, stöndum nú með þeim“

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, gerir listafólk og listamannalaun að umræðuefni í pistli sínum sem birtist á vef Vísis í dag.

Þar bendir Ágúst Ólafur á að Íslendingar hafi að undanförnu notið fjölmargra streymistónleika tónlistarfólks; Helga Björns, Páls Óskars, Bubba, Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Hljómahallar, Aldrei fór ég suður, streymissýninga leikhúsanna og RÚV ásamt upplestrum.

Það sé á erfiðum tímum sem þessum sem fólki átti sig á gildi og mikilvægi listarinnar. Nú sé hins vegar listin í hættu. Verktakar, þar á meðal listafólk, missir tekjur sínar í samkomubanni.

„Nú er búið að banna nær alla viðburði sem stétt listamanna reiðir sig á. Á þetta við leiksýningar, tónleika, árshátíðir, upptökur, bíósýningar og listasýningar en einnig ýmsan rekstur veitingahúsa og annarra staða sem bjóða upp á lifandi list af öllu tagi. Takmarkanir eru jafnvel á jarðarförum og brúðkaupum. Samkvæmt nýjustu fréttum verður bann á viðburðum hugsanlega langt eftir árinu og þar með talið bæjar- og menningarhátíðum sumarsins. Það yrði gífurlegt fjárhagslegt tjón fyrir tugþúsundir landsmanna,“ skrifar Ágúst Ólafur.

Gefa lífinu gildi

Listafólk, tónlistarfólk, leikarar, uppistandarar, teiknarar og rithöfundar hafa birt efni á samfélagsmiðlum til að skemmta Íslendingum heima í samkomubanni og sóttkví. Í kvöld á Hringbraut verður meðal annars sýnt frá viðburði í Tjarnarbíói sem heitir Saman í sóttkví.

„Listafólk stendur með okkur, stöndum nú með þeim,“ segir Ágúst Ólafur og bætir við að listafólk gefi ekki einungis lífinu gildi heldur sé það stétt sem iðulega gefi vinnu sína þegar mikið liggur við.

„Við reiðum okkur á þetta ágæta fólk hvort sem það er í gleði eða sorg, við afþreyingu eða upplyftingu andans. Nú þurfa listamenn á okkur að halda. Starfsgrundvöllur þeirra er farinn. Ef listin á að lifa þurfum við hin því að gera eitthvað.“

Eins og 1% af atvinnuleysi

Ágúst bendir á að til sé kerfi listamannalauna. Um er að ræða verkefnastyrki og laun sem hægt er að sækja um árlega. Í ár fá 325 listamenn af 1.544 umsækjendum rúmlega 407.000 kr. á mánuði í listamannalaun, yfirleitt í 3-12 mánuði.

Listamannalaun kosta hið opinbera nú um 650 milljónir krónur en Ágúst leggur til að launin verði margfölduð upp í 6,5 milljarð til að ná til 10 sinnum fleiri listamanna eða um 3500 listamanna.

„Sá fjöldi er svipaður fjöldi þeirra sem er nú sjálfstætt starfandi í menningu á Íslandi,“ segir Ágúst og bendir á að til að setja þessa tölu í samhengi sé gott að hafa í huga að hvert 1 prósentustig í auknu atvinnuleysi, um 2.000 manns, kosti ríkissjóð 6,5 milljarð kr. eða það sama og myndi kosta að tífalda listamannalaunin.

„Þessi tillaga mín mun spara hinu opinbera með minna atvinnuleysi, auk þess sem aukin umsvif listamanna skilar miklu fjármunum í ríkissjóð. Einnig væri hægt að hækka listamannalaunin þannig að þau næðu miðgildislaunum í landinu upp í 650 þúsund á mánuði. Að auki yrði til mikil listsköpun öllum hagsbóta og það er ómetanlegt, ekki síst á þessum tímum.

Listin og menningin er það sem gerir okkur að Íslendingum. Listafólk hefur staðið með okkur, nú á þessum erfiðum tímum, en líka alltaf áður. Nú skulum við standa með þeim, þegar á reynir. Tíföldum listamannalaunin strax.“