Vill þyngja dóm yfir sigurjóni

Saksóknari krafðist þess í Hæstarétti í morgun að refsing Landsbankamanna, sem voru dæmdir fyrir markaðsmisnotkun í viðskiptum með hlutabréf í Landsbankanum 2014, yrði þyngd. Til greina kæmi að dæma bankastjórann í meira en sex ára fangelsi.
 

Þetta kemur fram í frétta RÚV af málfkutningum í dag, en sem kunnugt er ákærði sérstakur saksóknari fjóra Landsbankamenn fyrir allsherjarmarkaðsmisnotkun með umfangsmiklum kaupum á hlutabréfum í bankanum í kauphöll tæpu ári fyrir hrun. Héraðsdómur taldi aftur á móti aðeins sannað að markaðsmisnotkun hefði átt sér stað síðustu fimm dagana fyrir hrun.  

 

Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri, var í nóvember 2014 dæmdur í eins árs skilorðsbundið fangelsi í héraðsdómi, þar af níu mánuði skilorðsbundið. Tveir undirmenn hans, Ívar Guðjónsson og Júlíus Steinar Heiðarsson, fengu níu mánaða dóm, þar af sex mánuði skilorðsbundið. Þriðji undirmaðurinn, Sindri Sveinsson, var sýknaður. Dómnum var áfrýjað til Hæstaréttar.

RÚV greinir frá því að Arnþrúður Þórarinsdóttir saksóknari hafi krafist þess í málflutningsræðu í Hæstarétti í morgun að fjórmenningarnir yrðu sakfelldir fyrir markaðsmisnotkun alla dagana sem ákæran tekur til. Hún benti á að á tímabilinu, sem ákært er fyrir, frá nóvember 2007 til október 2008, hefði deild eigin viðskipta Landsbankans keypt hlutabréf í bankanum fyrir 56 milljarða króna. Þetta hefðu verið um 20% af öllum hlutabréfum í bankanum.

\"Það var bara stöðugt passað upp á það að það yrði ekki verðfall á bréfunum,“ sagði saksóknari. Landsbankinn hefði keypt miklu meira af eigin hlutabréfum í kauphöllinni en hann seldi þar, og mikið tap bankans af kaupunum benti til þess að ekki hefðu legið viðskiptalegar forsendur að baki þeim, að því er fram kemur í frétt RÚV um málið í dag.