Vill þriggja ára fæðingarorlof

„Við þurfum að búa betur að börnunum okkar,“ segir Margrét Pála Ólafsdóttir, stjórnarformaður Hjallastefnunnar. Foreldrar og afar og ömmur þurfa að verja með þeim meiri tíma og atvinnulífið þarf að slaka á kröfum svo börnin njóti meira og betra atlætis.
 

Margrét Pála var gestur í í útvarpsþættinum Samfélaginu á Rás 1 í morgun þar sem hún var spurð stórrar spurningar; Hvernig bætum við samfélagið okkar? \"Með því að bæta umhverfi barna. Það er ekkert flóknara í mínum huga. Eftir því sem samfélagið gerir betur fyrir börn, og þar með barnafjölskyldurnar og svo hins vegar í skólaumhverfinu, þeim mun betra samfélag munum við fá,“ sagði Margrét Pála í þættinum.

En hvar er helst hægt að gera betur? \"Við búum skelfilega að yngstu börnunum,“ segir hún og bendir á að mesta mótunarstig barns sé til sirka þriggja ára aldurs. Þarna vanti lengra fæðingarorlof, fyrir foreldra og jafnvel ömmur og afa líka. Barni sé alltaf betur borgið í faðmi fjölskyldu sinnar. En um leið þurfum við að búa til frábæra valkosti fyrir foreldra sem annað hvort kjósa, eða þurfa, að fara út að vinna. Í dag er þetta þannig að fólk hefur of stutt fæðingarorlof, þarf að fara út að vinna, finna einhvern stað til að bjarga sér í einhverra mánaða millibilsástandi. Síðan kemst barnið ekki inn í leikskóla fyrr en um tveggja ára gamalt, af því það er svo dýrt fyrir sveitarfélagið að hafa litlu börnin í smábarnaskóla,“ sagðu hún ennfremur í þættinum.

\"Ég er handviss um að það myndi verða öllum til ágóða, að fjölskyldur geti haft val um að fá stuðning til að vera lengur heima, allt fram undir þriggja ára,“ segir Margrét Pála og leggur til að atvinnulífið og stéttarfélögin komi að því að leysa þessi mál. „Við þurfum bara öll að hjálpast að til að gera það besta í heimi fyrir litlu börnin, sem fram undir þriggja ára eru mörg hver í ákveðnu reiðileysi,“ sagði Margrét Pála Ólafsdóttir, stjórnarformaður Hjallastefnunnar í Samfélaginu á Rás 1 í morgun.