Vill svör um álfyrirtækin og höftin

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, er ekki sátt með að fá ekki svör um hversu mikið af peningum álfyrirtækin hafa borgað móðurfélögum sínum, þann tíma sem hér hafa verið gjaldeyrishöft.

Katrín lagði fram spurningar á þingi en Seðlabankinn taldi sér ekki fært að svara; sökum þagnarskykdu og persónuverndar.

Því ætlar Katrín að leggja fram nýja spurningu þegar þing kemur saman að nýju og spyrja þá einungis um fyrirtækin í heild, ekki einstaka fyrirtæki.

Viðtal við Katrínu verður á dagskrá Hringbrautar í kvöld.