Vill stytta málsmeðferð kynferðisbrota

\"Ég vil tryggja skemmri málsmeðferðartíma fyrir þolendur kynferðisbrota,“ segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Hún hefur hafið vinnu við að setja saman starfshóp sem á að skoða verklag og viðbrögð lögreglunnar við kynferðisbrotum.

Þetta kemur fram í viðtali Fréttablaðsins við Sigríði Björk í dag, en hún segir þar að meðal annars verði ráðist í skipulagsbreytingar hjá embættinu í haust þar sem kynferðisbrotadeildin verður sérhæfð sem slík og aðrir málaflokkar teknir út úr deildinni: \"Starfshópurinn verður í samstarfi við ríkislögreglustjóra og ríkissaksóknara og verður óskað eftir samstarfi við þá sem koma að þessum málaflokki, svo sem Stígamót, Landspítalann, réttargæslumenn og fleiri,“ segir Sigríður í blaðinu.

Umræða um verklag lögreglu hefur verið mikil síðustu daga. Sigríður Björk segir að starfshópurinn sé ekki svar við umræðunni. Vinna í honum hafi verið byrjuð fyrr: \"Ég legg ríka áherslu á að þessi mál séu í lagi. Að skoða það hvernig við rannsökum þessi mál og vinnum úr þeim er lykilatriði.“

Gagnrýni á lögregluna hefur meðal annars snúið að því hve hátt hlutfall kæra eru felldar niður. Árið 2013 var rannsókn hætt í 52 prósentum tilfella þegar nauðgun hafði verið kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þá er ótalið hve oft mál var látið niður falla hjá ríkissaksóknara.

Sigríður Björk segir rannsókn mála vera eitt og dómsmeðferð annað: \"Það er þunn lína á milli þess að taka ráðin af brotaþola eða aðstoða við að upplýsa mál. Þolendur kynferðisbrota eru jafnan í mjög viðkvæmri stöðu og hafa oft ekki forsendur á þeirri stundu sem mögulegt er að tryggja sönnun að taka afstöðu til kæru.“