Mál fjölskyldunnar komst í hámæli um helgina, en umsókn Wael Aliyadah, Feryal Aldahsah og dætra þeirra Jouli og Jönu, um hæli á Íslandi fékk ekki afgreiðslu á þeirri forsendu að fjölskyldan væri þegar með hæli í Grikklandi. Innanríkisráðherra hefur lýst því yfir að flóttafólk verði ekki sent aftur til landa sem teljist óörugg, þar á meðal Grikklands.
Unnur Brá Konnráðsdóttir, formaður allsherjarnefndar og meðlimur þingmannanefnd um endurskoðun útlendingalaga, sagði við RÚV í gær að málið væri frábrugðið þeim sem komið hefðu upp að undanförnu þar sem fjölskyldan hefði þegar fengið hæli og þar með vernd í öðru ríki.
Hún telur þó að það eigi að skoða þetta sérstaklega og að búast megi við málum sem þessum á næstu misserum. Þar sem regluverk virðist ekki rýma við stefnu stjórnvalda þar sem hraðar breytingar eigi sér nú stað: \"Þetta verður því miður ekki fyrsta eða eina tilvikið sem er öðruvísi en öll hin. Þetta mun allt saman taka tíma að slípa regluverkið til. En það góða við þetta er að stjórnvöld hafa sett af stað þverpólitíska þingmannanefnd sem er að skila drögum að nýju frumvarp til ráðherra um ný útlendingalög. Þar sem fjallað er um hælismálin meðal annars og vonandi náum við afgreiða það stóra mál í gegnum þingið í vetur,“ sagði Unnur Brá í fréttum RÚV í gær